is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1261

Titill: 
  • Flutningur og geymsla á uppsjávarfiski frá veiðum til vinnslu í landi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um flutning og geymslu á uppsjávarfiski frá veiðum til vinnslu í
    landi.
    Til að byrja með er fjallað um þætti sem eru notaðir til að meta gæði hráefnis, sem eru
    upplausn hráefnis, magn reikulla köfnunarefnissambanda í hráefni og magn frírra
    fitusýra í hráefni. Skoðuð verða þau atriði sem hafa áhrif á gæðin sem eru áta í
    hráefni, hitastig sjávar, geymslutækni, geymslutími, hitastig við geymslu, þrifnaður á
    öllu sem kemst í snertingu við hráefnið o.fl.
    Skoðað er hvaða áhrif mismunandi veiðarfæri og dælubúnaður hafi á hráefnið.
    Veiðarfærin eru nót og flottroll. Það eru notaðar tvær tegundir af fiskidælum,
    vakumdæla og miðflóttaaflsdæla sem hafa misgóð áhrif á hráefnið.
    Aðalatriðið í þessu verkefni er geymsla og flutningur á aflanum um borð í skipi og
    verður gerður samanburður á mismunandi kælikerfum sem notuð eru til þess.
    Kælikerfin eru RSW kerfi (Refrigerared Sea Water System), CSW kerfi (Chilled Sea
    Water System), krapaískerfi (Slush Ice System) og vökvaískerfi (Liquid Ice System).
    Hvert þessara kerfa hefur sína kosti og galla og verður gerð grein fyrir þeim, m.t.t.
    hráefnis.
    Farið verður í útreikninga á hve mikils afls er þörf við að kæla afla um borð í
    uppsjávarveiðiskipi. Að síðustu er könnuð arðsemi þess að bæta kæligetuna um borð
    í því, með því að bæta við RSW kerfið, sem fyrir er því, eitt af eftirfarandi þremur
    kerfum: CSW kerfi, krapaískerfi eða vökvaískerfi. Niðurstaðan gefur vísbendingar
    um að það sé arðbært að bæta krapaískerfi við RSW kerfið þar sem betri kæliafköst
    nást, og aukið skilaverð fæst því fyrir aflann.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1261


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Dagur Björn Agnarsson_e.pdf172.75 kBOpinnFlutningur - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Dagur Björn Agnarsson_h.pdf183.48 kBOpinnFlutningur - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Dagur Björn Agnarsson_heild.pdf1.08 MBTakmarkaðurFlutningur - heildPDF
Dagur Björn Agnarsson_u.pdf102.8 kBOpinnFlutningur - útdrátturPDFSkoða/Opna