is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/814

Titill: 
  • Skötuselur : veiðar, vinnsla og markaðir : sóknarfæri?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta fjallar um vinnslu og markaði skötusels í heiminum. Tilgangur
    verkefnisins var að varpa ljósi á og gefa yfirlit yfir þá markaði sem Íslendingar hafa
    verið að selja skötusel á. Fjallað er um veiðar þeirra þjóða sem veitt hafa skötusel
    og gildir þá einu hvort um er að ræða sömu tegund og Íslendingar veiða (Lophius
    piscatorius) eða einhverja af hinum sex tegundunum sem þekktar eru.
    Í verkefninu er fjallað um helstu tegundir skötusels sem veiddar eru og nýttar til
    manneldis og fjallað um helstu veiðiþjóðir.
    Framleiðsla á skötuselsafurðum er skoðuð og einnig hvernig Íslendingar hafa verið
    að vinna þann afla sem unninn er á Íslandi. Dregin eru saman meðalverð á
    erlendum mörkuðum og einnig það magn sem selt hefur verið til hvers lands fyrir
    sig. Verkefnið er þannig upp sett að eftir lestur hafi viðkomandi skýra mynd af
    stöðu skötuselsmarkaðarins.
    Í verkefninu kemur fram að mestur hluti íslenska aflans er seldur erlendis óunninn
    en þó eru framleiðendur að vinna hér afurðir,að vísu í litlu magni.
    Í niðurstöðum kemur fram að illa sé hægt að segja til um hvert eða hvernig
    hagstæðast sé að selja skötusel hverju sinni því um sé að ræða síkvikan markað þar
    sem verð breytist mikið.
    Lykilorð: Skötuselur. Veiðar. Vinnsla. Markaður. Lophus piscatorius.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/814


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf22.43 kBOpinnSkötuselur - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf30.37 kBOpinnSkötuselur - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Skötuselur.pdf1.6 MBLokaðurSkötuselur - heildPDF
Útdráttur.pdf13.88 kBOpinnSkötuselur - útdrátturPDFSkoða/Opna